Keflavík er FJÓRFALDUR meistari - einsdæmi í íslenskri körfuboltasögu
Leiktíðinni sem lauk á laugardag verður seint gleymt. Þetta var lílkega ein besta leiktíð sem nokkurt félag hefur átt í íslenskri körfuboltasögu, þegar horft er jafnt til karla og kvenna. Skoðum nokkrar staðreyndir:
Keflavík er fjórfaldur meistari (Íslandsmeistari karla og kvenna og Bikarmeistari karla og kvenna)
- Ekkert annað félag hefur náð þessum árangri, en Keflavík hefur náð þessu einu sinni áður, árið 1993
Keflavík varð tvöfaldur meistari í karlaflokki annað árið í röð (Íslands- og Bikarmeistari)
- Aðeins einu sinni hefur það gerst áður á þeim 40 árum sem keppt hefur verið um báða stóru titlana, en KR varði báða titlana árið 1967
Keflavík hefur nú fjórum sinnum orðið tvöfaldur meistari karla, oftar en nokkurt annað félag
- Keflavík 4 sinnum (93, 97, 03, 04)
- KR 3svar sinnum (66, 67, 79)
- Njarðvík 2svar (87, 02)
- Valur 1 sinni (80)
- Ármann 1 sinni (76)
Keflavík hefur nú 9 sinnum orðið tvöfaldur meistari kvenna, oftar en nokkurt annað félag
- Keflavík 9 sinnum (88, 89. 90, 93, 94, 96, 98, 00, 04)
- KR 8 sinnum (77, 82, 83, 86, 87, 99, 01, 02)
- ÍS 2svar (79, 91)
Keflavík hefur nú 5 sinnum orðið Íslandsmeistari karla og kvenna sama árið, en aðeins ÍR hefur náð betri árangri
- ÍR 6 sinnum (57, 63, 70, 72, 73, 75)
- Keflavík 5 sinnum (89, 92, 93, 03, 04)
- KR 1 sinni (79)
Keflavík varði í ár bæði Íslandsmeistaratitil karla og kvenna, en það hefur aðeins gerst tvisvar áður í sögunni
- Keflavík vann "back-to-back" karla og kvenna 92 og 93
- ÍR vann "back-to-back" karla og kvenna 72 og 73
Keflavík er ungt félag í íslenskri körfuboltasögu. Á síðustu 16 árum, allt frá því að Keflavík náði fyrst að leika til úrslita árið 1989, hefur félagið orðið 7 sinnum Íslandsmeistari og 11 sinnum leikið til úrslita. En samt er langur vegur eftir til að ná þeim sem oftast hafa orðið Íslandsmeistarar á þeim 53 árum sem keppt hefur verið um Íslandsbikarinn.
- ÍR 15 sinnum (síðast 77)
- Njarðvík 12 sinnum (síðast 02)
- KR 9 sinnum (síðast 00)
- Keflavík 7 sinnum
- ÍKF 4 sinnum (síðast 58)
- Valur 2svar (síðast 80)
- Grindavík 1 sinni (96)
- Haukar 1 sinni (88)
- Ármann 1 sinni (76)
- ÍS 1 sinni (59)
Keflavíkurdömur geystust fram á sviðsljósið með látum árið 1988 og hafa á 17 árum orðið 11 sinnum Íslandsmeistarar og aðeins tvisvar hafa þær ekki unnið tvöfalt. Keflavík hefur nú jafnað við ÍR sem voru sterkar frá 1956-75 og það styttist nú verulega í KR sem vann sinn fyrsta Íslandsmeistarasigur fyrir 42 árum, árið 1961.
- KR 13 sinnum (síðast 02)
- ÍR 11 sinnum (síðast 75)
- Keflavík 11 sinnum
- ÍS 3svar (síðast 91)
- Ármann 3svar (síðast 60)
- Þór Ak 3svar (síðast 76)
- Grindavík 1 sinni (97)
- Breiðablik 1 sinni (95)
- Skallagrímur 1 sinni (64)
Lengstu sigurgöngu í karlaflokki eiga ÍR-ingar sem unnu tvisvar 5 ár í röð, frá 1960-64 og frá 69-73
Lengstu sigurgöngu í kvennaflokki eiga KR-ingar sem unnu 5 ár í röð frá 1979-83.
Keflavík hefur nú alls (karla og kvenna) orðið 18 sinnum Íslandsmeistari og 16 sinnum Bikarmeistari, aðeins KR hefur fleiri hampað fleiri "stórum" í gegnum tíðina, eða 42. Athygli vekur að ÍR sem hefur oftast alls orðið Íslandsmeistari, 26 sinnum, hefur aðeins 2svar orðið Bikarmeistari.
Gott að sinni.