Keflavík er Hópbílameistari kvenna 2003 eftir 73-52 sigur á KR
Keflavík hafði forystuna nánast allan leikinn, yfirleitt á bilinu 4 - 10 stig. Samt var leikur stúlknanna ekki sannfærandi, lengst af og þegar síðasti leikhluti hófst var munurinn aðeins fimm stig, 50-45. En fljótlega í byrjun 4ða leikhluta kom Erla Þorsteinsdóttir aftur inná, en hún hafði verið hvíld mikið sökum villuvandræða. En innkoma hennar í lokahlutanum gerði útslagið í leiknum. KR-stúlkur réðu ekkert við erlu sem skoraði á skömmum tíma 10 stig og Keflavík tók öll völd á vellinum. Vörnin hertist og hraðinn óx. Síðasti leikhlutinn vannst 23-7 og munurinn í lokin var 21 stig, 73-52. Keflavík náði þar með að verja titilinn sem þær unnu í fyrsta skiptið í fyrra, einnig í leik gegn KR. Til hamingju með árangurinn stúlkur!
Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu og vonandi hafa margir fylgst með honum þar, því ekki voru áhorfendur margir, enda leiktíminn afar áhorfenda ó-vænn, ef svo má að orði komast, þar sem þjóðin er komin í jólaham. Að leik loknum tók fyrirliðinn og besti maður liðsins, Erla Þorsteinsdóttir, við bikar og formaður deildarinnar tók við verðlaunum frá Hópbílum, að verðmæti 200 þúsund króna.
Keflavíkurliðið lék svæðisvörn allan tímann og með því móti vildi Hjörtur eflaust gera Hildi og Katie erfitt fyrir og reyna þannig að hafa fleiri en einn varnarmann á móti þeim. Vörnin var hins vegar ekki aggressív fyrr en í lokin og um tíma fengu KR-stúlkur mikið af fríum skotum og hittu m.a. úr 6 þriggja stiga. Annars átti Hildur Sigurðar erfitt uppdráttar gegn svæðisvörninni og hitti úr engu af 13 skotum sínum, sem verður að teljast til tíðinda.
Okkar stúlkur náðu ekki upp nauðsynlegum hraða og virkuðu máttlitlar framan af leik, það vantaði áræðni og kraft í liðið. Þó sýndu þær ágætis tilburði og t.d. hirtu þær 50 fráköst í leiknum, gegn 39 fráköstum KR-inga. Sterkastar í fráköstunum voru reynsluboltarnir, Birna 10, Erla Þ 9 og Anna M 9. Sendingarnar voru margar afar slakar og tapaði liðið boltanum 25 sinnum í leiknum, en það er frekar mikið. Þó hafði maður ávallt á tilfinningunni að Keflavíkurliðið væri sterkara, þetta væri bara spurning um að herða vörnina og ná upp keyrslunni, því þannig opnast færin, og þannig getur breiddin nýst, en KR hefur ekki sömu breiddina. "Góði kaflinn" kom síðan í lokin og fór fyrirliðinn fyrir sínu liði, eins og sagt hefur verið.
Auk Erlu átti Anna María ágætan dag, þó oft hafi skotnýting hennar verið betri, en hún skoraði 15 stig. Erla Þ skoraði 23. Annars dreifðist stigaskorið jafnt: Birna 7, Bryndís 6, Rannveig og Svava 5, Marín, Erla R og María B 4. Halldóra lék einnig en skoraði ekki. Bryndís átti góða innkomu og er þar á ferð verulega vaxandi leikmaður, aðeins 15 ára að aldri, líkt og María Ben.
Til hamingju Keflavík og nú verður fróðlegt að sjá hvernig gengur hjá stúlkunum að eiga við stóra Bikarinn, en þar mætum við Þór Akureyri í 8 liða úrslitum og ættum að eiga alla möguleika á að komast í undanúrslit.