Keflavík er Íslandsmeistari í 7. flokki kvenna
Fyrr í dag varð 7. flokkur stúlkna Íslandsmeistari eftir sigur gegn Snæfellingum og Selfyssingum. Keflavíkurstúlkur, undir stjórn Svövu Stefánsdóttur, eru yfirburða lið í sínum aldursflokki og unnu þær andstæðinga sína með miklum mun í dag. Snæfellsstúlkur hrepptu annað sætið. Að lokinni keppni fengu stúlkurnar gullpening um hálsinn og bikar! Mynd af meisturunum verður bráðum birt á síðunni.
Til hamingju með frábæran árangur stelpur!