Keflavík er ÍSLANDSMEISTARI í körfubolta karla 2004
Nú í kvöld tókst piltunum þeirra Fals og Guðjóns að verja Íslandsmeistaratitilinn sem verður því í Keflavík amk eitt ár í viðbót. Magnaður varnarleikur og öflug liðsheild skóp sigurinn gegn Snæfelli sem komust lítt áleiðis í tveimur síðustu leikjunum. ´
Keflvíkingar ætla að fagna sigrinum í Stapanum í kvöld. Húsið opnar kl. 22 og munu Íslandsmeistararnir mæta á svæðið kl. 23.
Meira síðar . . . .
Til hamingju Keflvíkingar með frábæran sigur og hreint ótrúlegan árangur í vetur, sem er með því allra flottasta sem sést hefur.