Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 1. apríl 2012

Keflavík er Íslandsmeistari í minnibolta stúlkna 2012

Keflavík varð Íslandsmeistari í minnibolta stúlkna í dag eftir sigur á Grindavík, 40-16, en leikið var í Toyotahöllinni.  Um hreinan úrslitaleik var að ræða þar sem Grindavíkurstúlkur voru einnig búnar að vinna alla sína leiki á mótinu fram að þessum leik. Með sigrinum er enn einn titillinn kominn í hús hjá stelpunum í Keflavík, en 7. og 8. flokkur kvenna eru einnig búnar að vinna titilinn. Keflavíkurstelpurnar spiluðu frábærlega alla helgina þar sem ekkert var gefið eftir og er framtíðin björt hjá þessum ungu stelpum. Það er Rannveig Kristín Randversdóttir sem hefur þjálfað stelpurnar í vetur.