Fréttir

Körfubolti | 7. nóvember 2002

Keflavík er komið í hóp "hinna fjögurra fræknu"

Hin fjögur fræknu er heiti yfir undanúrslit og úrslit Kjörískeppninnar sem þetta árið fer fram í Keflavík. Eins og allt útlit var eftir fyrri leikinn gegn Breiðablik, var sigur okkar mann aldrei í hættu í seinni leiknum sem fram fór í gær.

Ekki er hægt að segja að körfuboltinn hafi verið sérlega glæsilegur hjá Keflavík, ef undanskildar eru nokkrar mínútur í lok fyrri hálfleiks. Annars var eins og að drengirnir væru að ljúka skylduverkefni sem ekki væri sérlega skemmtilegt.

Sigurinn var aldrei í hættu, en gaman hefði verið að sjá drengina leggja meira á sig í leiknum.