Keflavík er Meistari Meistara karla 2003
Flestir áttu kannski von á því að Keflavík myndi vinna Snæfell í keppninni um Meistara Meistaranna 2003. En fæstir áttu þó von á því að Snæfellingar væru jafn sprækir og raun bar vitni. Og það þrátt fyrir að Hlynur Bæringsson, þeirra prímus mótor, hafi ekki leikið með sökum meiðsla. Niðurstaðan var hörkuleikur þar sem Keflavík hafði reyndar yfirhöndina mest allan tíman, en Snæfellingar léku vel og voru aldrei langt undan. Lokastaðan var 97-90, eftir að Keflavík hafði leitt 59-53 í hálfleik, og 85-73 eftir þrjá leikhluta.
Leikurinn varð kannski aldrei verulega spennandi en samt komu Snæfellingar á óvart með góðri frammistöðu. Kanarnir þeirra, Corey Dickinson og Dondrell Whitmore, léku afar vel og skoruðu alls 60 af 90 stigum gestanna. Corey er afar fljótur lekmaður og bakaði okkar varnarmönnum alls konar vandræði allan leikinn.
Leikur okkar manna var nokkuð sveiflukenndur. Í byrjun náðu þeir 12-4 forskoti, en gáfu það fljótt eftir. Síðan gekk leikurinn í þeim takti. Keflavík náði 10-15 stiga forystu sem jafnharðan hvarf þegar menn gerðust kærulausir, sérstaklega í vörninni. En góður sprettur í þriðja leikhluta gerði út um leikinn. Þá lét Guðjón þjálfari okkar menn leiks grimma pressuvörn sem skilaði góðum afrakstri. Munurinn fór í 16 stig og eftir það voru úrslitin ráðin.
Nick og Derrick voru atkvæðamiklir í leiknum. Nick setti 27 stig og hirti 12 fráköst, en Derrick skoraði 19 og hirti 18. Ótrúlegt hvað sá drengur hleypur hratt upp og niður völlinn. Nick sýndi betri takta en í fyrri leikjum en hitti þó illa, eða öllu heldur ekkert, utan 3ja stiga línunnar. Magnús meiddist í upphafi seinni hálfleiks og kom ekkert við sögu eftir það. Gunnar Einarsson hélt uppteknum hætti og fór fyrir sínum mönnum (14 stig, 7 fráköst), Jonni og Sverrir voru einnig verulega grimmir í vörninni (stálu samtals 10 boltum) og Falur skoraði þegar hann fann smugu. Hjörtur lék prýðilega, en fékk ódýrar villur, og Gunnar Stefánsson og Halldór áttu ágætar innkomur, þótt Halldór hefði að ósekju mátt spreyta sig meira.
En heilt yfir, góður sigur og titill í hús. Þetta var í annað skiptið sem Keflavík varð Meistari Meistaranna og eins og staðan er í dag er liðið handhafi allra titla sem keppt er um í íslenskum körfubolta nema hvað liðið er ekki Deildarmeistari.
Annar titillinn á þremur dögum gefur góð fyrirheit fyrir Íslandsmótið sem hefst á föstudaginn, en þá koma Hamarsmenn frá Hveragerði í heimsókn. Þá verður mikið húllum hæ í íþróttahúsinu, en nánar verður gert grein fyrir því síðar.
Til hamingju strákar.
Hér má sjá tölfræði úr leiknum.
Á myndinn má sjá heiðursgest leiksins, forseta Íslands, hr. Ólaf Ragnar Grímsson, afhenda strákunum sigurverðlaunin (myndin er fengin að láni hjá Víkurfréttum)