Fréttir

Körfubolti | 5. október 2003

Keflavík er Meistari Meistara kvenna 2003

Úrslitaleikurinn í Bikarkeppninni í febrúar s.l. lifir enn í manna minnum. Þá var Keflavík klárlega betra liðið, en tapaði niður 17 stiga forystu í síðasta leikhlutanum og ÍS varð Bikarmeistari. Því mættust þessi félög aftur í kvöld í keppninni um titilinn Meistari Meistaranna. Íslandsmeistarnir gegn Bikarmeisturunum. Þessi tvö félög hafa að margra mati á að skipa bestu kvennaliðunum um þessar mundir, þannig að ljóst var að um hörkuviðureign yrði að ræða. Og sú varð raunin.

Reyndar byrjuðu okkar stúlkur betur og virtust hafa tögl og haldir á leiknum. En svo jafnaðist leikurinn og ÍS komst fjórum stigum yfir í þriðja leikhluta. En Keflavík náði aftur yfirhöndinni og landaði, þrátt fyrir sveiflur, öruggum sigri og endurheimti þar með titilinn sem hafði verið í geymslu í Njarðvík í eitt ár. Kvennalið Keflavíkur hefur nú unnið þennan titil fjórum sinnum, en ekkert annað félag hefur unnið hann oftar en einu sinni.

Af leiknum er helst að segja að Keflavík komst kannski aldrei í "stuð", því ÍS-stúlkur voru mun grimmari í fráköstunum, hirtu 37 á móti 29 hjá Keflavík. En Erla Reynisdóttir var sterk í leiknum og leiddi sitt lið til sigurs. Hún gerði 16 stig og lék afar vel. Nafna hennar Þorsteinsdóttir var sterk undir körfunum í lokin og hafði það mikið að segja. Rannveig átti góðan sprett í fjórða leikhluta og hélt okkur inní leiknum þegar lítið gekk.

Heilt yfir var sigurinn sanngjarn þótt útlitið hafi kannski ekki verið bjart um hríð. En titilinn er okkar og nú er ekkert að vanbúnaði að takast á við Íslandsmótið sem hefst á fimmtudaginn.

Til hamingju stelpur.

Hér má sjá tölfræði úr leiknum.