Keflavík er Reykjanesmeistari 2003
Í kvöld vann Keflavík Hauka í úrslitaleik Reykjanesmótsins í Njarðvík, en það mátti ekki tæpara standa. Eftir ágætan sprett í fyrri hálfleik var leikur okkar manna hálf vandræðalegur í seinni hálfleik og Haukar komust í 8 stiga forystu 68-60. En þá kom Sverrir Þór Sverrisson inn á völlinn í fyrsta sinn í leiknum. Aðeins voru fimm mínútur eftir en með tilkomu Sverris varð allt annar bragur á varnarleik liðsins sem sótti í sig veðrið. Lékurinn snérist algerlega og þegar rúm mínúta var eftir var staðan orðin 74-70 fyrir Kef. Aftur jafnaðist leikurinn en Nick setti niður góðan þrist og fiskaði mikilvægan ruðning á lokasekúndunum. Gunnar Einarsson innsiglaði sigurinn á vítalínunni og lokatölur voru 79-77. Keflavík tóks því að verja Reykjanestitilinn líkt og Valsmótstitilinn fyrir skömmu. Árangur æfingamótanna er því vel ásættanlegur.
Það væri þó rangt að segja að Keflavíkurliðið hefði leikið vel í kvöld. Sverris þáttar hefur verið getið, en auk hans átti Arnar Freyr ámóta sprett í fyrri hálfleik með góðri vörn og nokkrum góðum körfum. Derrick var duglegur undir körfunum en Nick var lítið áberandi, þó var hann mikilvægur í restina.
Haukarnir léku ágætlega og var Halldór Kristmannsson erfiður enda góð skytta. Eins var Kaninn þeirra öflugur undir körfunum. Dómararnir vöktu stundum viðbrögð áhorfenda, eins og gengur, en ekki hallaði á annað liðið frekar en hitt.
Alls komu 12 leikmenn við sögu hjá Keflavík í leiknum og náðu flestir að setja mark sitt á leikinn. En vegna örra skiptinga tapaðist oft takturinn í leiknum, en við því má búast undir slíkum kringumstæðum. Enda er þjálfurunum vandi á höndum að finna leiktíma handa öllum því margir sprækir strákar eru í liðinu um þessar mundir.
Fyrr um kvöldið unnu Njarðvíkingar Grindavík stórt og er óhætt að segja að þau úrslit hafi komið á óvart. En þau gefa góð fyrirheit um hvað getur gerst í vetur.
Nú er æfingatímabilinu lokið og við tekur hið eiginlega keppnistímabil. Fyrsti leikurinn í deildinni er föstudaginn 10. okt. gegn Hamri, en áður en að honum kemur leikur Keflavíkurliðið við Snæfell um titilinn Meistari meistaranna 2003. Gaman væri að landa þeim titli í hús, því ekki hefur hann unnist síðan 1997.