Keflavík fékk afhent sigurverðlaunin og Anthony Glover var valinn besti leikmaður mótsins - Siggi þjálfari ánægður
Rétt í þessu fengu Keflvíkingar afhentan Norðurlandameistarabikarinn eftir glæstan stórsigur á finnsku meisturunum. Anthony Glover var auk þess valinn besti leikmaður mótsins af mótshöldurum.
Siggi þjálfari var að vonum ánægður og sagði að liðið hefði leikið glimrandi körfubolta í dag, ekki síst í seinni hálfleik. Maggi var frábær og Jonni og Arnar stóðu sig feikivel. Gunni Einars átti stórleik og svo voru báðir Kanarnir afar öflugir í þessum leik. Annars stóðu allir leikmenn sig vel sagði þjálfarinn, við erum að verða tilbúnir í Evrópukeppnina, sagði hann að lokum.
Keflvíkingar eru nú búnir að bæta nýrri rós í hnappagatið, með glæstum sigri á fyrsta Meistaramóti Norðurlanda - Nordic Challenge - sem haldið var í Osló. Með glæstum sigri sínum, ekki síst á Svíum og Finnum, gera Keflvíkingar nú réttmætt tilkall til að kallast besta félagslið á Norðurlöndum.
Til hamingju með það Keflavík!