Keflavík fór í gang í seinni hálfleik á Ísafirði og vann með 32 stigum, 116-84
Eftir langt og strangt ferðalag til suðurstrandar Frakklands hélt Keflavíkurliðið í annað ferðalag, öllu styttra þó, til Ísafjarðar. Þjálfararnir höfðu pínulitlar áhyggjur af þreytu leikmanna, en voru samt vissir um að breiddin myndi skila sér.
Leikurinn hófst ágætlega og Keflavík komst 12 stig yfir, en heimamenn í KFÍ skoruðu 13 stig í röð og náðu næstum að jafna fyrir hálfleik, 40-41. Fremstir í flokki Ísfirðinga eru þeir Spanich og Jeb Ivy, en sá fyrrnefndi er gríðarleg skytta. Þeir félagar skoruðu 29 og 27 stig og hirtu 12 og 13 fráköst.
Guðjón lagði áherslu á að leikmenn Keflavíkur myndu spretta úr spori í seinni hálfleik og keyra í botni. Hann lét liðið leika svæðisvörn allan leikinn og mikil pressa var sett á heimamenn. Leikurinn leystist upp og varð hraður, en í svoleiðis leik eru Keflvíkingar bestir. Enda var ekki að sökum að spyrja, Keflavík náði forystunni strax og jókst hún stöðugt til leiksloka. Í lokin var munurinn 32 stig, 84-116. Seinni hálfleikur fór því 75-44 fyrir Keflavík.
Jonni hélt áfram þar sem frá var horfið í Frakklandi og átti annan stórleik. Hann lét verulega að sér kveða í sóknarleiknum og skoraði 24 stig, hitti úr 10 af 11 skotum og setti niður einn þrist. Jonni fékk aðeins eina villu á 30 mín, en það telst til tíðinda! Derrick og Nick voru "solid", Derrick með 30 stig / 10 fráköst og Nick með 20 / 7. Allir leikmenn komu við sögu og allir skoruðu nema Magnús, en þreytan virtist sitja soldið í honum. Hann tók þó 6 fráköst og átti 5 stoðsendingar á 14 mín. Gunnar Einarsson og Davíð Jónsson hvíldu í þetta skiptið. Arnar og Sverrir voru grimmir í pressuvörninni og skoruðu 9 stig hvor, Falur 11 (3 af 6 í þristum), Hjörtur 7, Gunni Stef 3 og Halldór 3. Keflavíkurliðið tapaði aðeins 9 boltum í leiknum en það er gott, en fjöldi mistaka í sókninni hefur verið okkar helsti galli upp á síðkastið. Til dæmis má geta þess að Keflavík "leiðir" listann yfir tapaða bolta í Evrópukeppninni, með 24 stk að meðaltali í leik. Vafasamur heiður það . . .
Guðjón þjálfari var ánægður með seinni hálfleikinn. Hann taldi að ef Keflavík myndi keyra í botni á 10 mönnum, þá ætti sigurinn að falla okkur í skaut. Sú varð og raunin.
Næst á dagskrá er heimaleikur gegn Tindastóli á þriðjudag kl. 19.15.