Keflavík-Fribourg kl 20.30 í kvöld
Nú er komið að leiknum sem margir hafa beðið eftir, Keflavík á móti Svissneska liðinu Benetton Olympic Fribourg. Keflavík var ofar á lista eftir riðla keppnina og fór því fyrst til Sviss og seinni leikur svo hér í Keflavík í kvöld. Keflavík náði ágætum úrslitum í Sviss þó ekki hafi þeir náð sigri, leikurinn endaði 103-95. 8 stiga tap þýðir einfaldlega að við verðum að vinna þá með 9 stigum eða meira í leiknum í kvöld, því samanlögð úrslit gilda úr leikjunum tveimur. Það er því ljóst að það verður að duga eða drepast fyrir bæði lið og alveg á hreinu að Keflavík ætlar sér áfram í næstu umferð og halda Evrópu ævintýrinu áfram.
Fribourg hefur marga góða leikmenn innan sinna raða, og ber það helst nefna Bandaríkjamannin Delmonte Madison( nr 11). Madison er í 3 sæti yfir stigahæstu menn í Bikarkeppni Evrópu með 24 stig að meðaltali og skoraði kappinn 24 stig á móti okkur í síðasta leik. Aðrir sprækir eru Króatíski bakvörðurinn Slavan Smiljanic (Nr 4)og David Esterkamp frá Usa (nr 7). Kandíski bakvörðurinn Randall Nohr mun ekki spila meira með liðinu og má segja að Esterkamp hafi komið í hans stað. Annas eru í liðinu þrír leikmenn fæddir í Usa, einn Finni, tveir frá Serbíu og Svartfjallalandi, tveir frá Bosníu og einn frá Króatíu.
Það er nú þegar búin að selja mikið af miðum á leikinn í kvöld og alveg ljóst að Keflvíkingar og aðrir sannir körfuboltamenn ætla ekki að láta þennan leik fram hjá sér fara. Hin marg fræga stuðningsmannasveit Keflavíkur verður að sjálfsögðu á staðnum
og mun ekki bara halda stemmingu og takti allan leikinn, heldur sjá þeir félagar um kynning og verða að auki með magnað ljósashow sem ekki hefur sést áður.
Mynd úr leiknum í Sviss.