Fréttir

Keflavík getur bætt 14. bikartitlinum í safnið - Eru þið búin að tryggja ykkur miða?
Karfa: Konur | 18. febrúar 2015

Keflavík getur bætt 14. bikartitlinum í safnið - Eru þið búin að tryggja ykkur miða?

Nú er  farið að styttast í bikarúrslitaleik Keflavíkur og Grindavíkur í kvennaflokki en hann verður háður í Laugardalshöll nk. laugardag og hefst kl. 13.30. Þar hafa Keflavíkurstúlkur tækifæri til að vinna sinn 14. bikartitil. 

Vakin er athygli á því að þeir sem vilja kaupa miða á leikinn í forsölu geta enn nálgast miða í afgreiðslunni í TM-Höllinni milli kl. 16:00 til 20:00. Þar fást miðarnir á 2000 kr. stk en á leikdegi verða miðarnir seldir á 2500 kr. Miðinn gildir bæði á úrslitaleik kk og kvk. Frítt er fyrir krakka 12 ára og yngri.