Fréttir

Körfubolti | 7. nóvember 2003

Keflavík getur orðið eitt af "hinum fjóru fræknu" í Hópbílabikarnum eftir leikinn gegn Hamri á sunnudaginn

Keflavík hefur alls sjö sinnum tekið þátt í keppni "hinna fjögurra fræknu" í fyrirtækjabikarnum svokallaða, eða öll átta árin nema árið 2000. Keflavík hefur fjórum sinnum unnið keppnina, og Njarðvík, Grindavík og Tindastóll hafa öll unnið einu sinni. Það er því ansi ólíklegt að nýr meistari verði skráður í sögubækurnar þetta árið þar sem Njarðvík, Grindavík og Tindastóll hafa öll þegar tryggt sér þátttöku meðal "hinna fjögurra fræknu", en sú keppni fer fram í Laugardalshöllinni föstud. og laugard. 22. og 23. nóv.

Hjá stúlkunum fara undanúrslitin fram laugard. 29. nóv. en úrslitin þann 20. des. í Smáranum, líkt og í fyrra. Þar mætir Keflavík sterku ÍS-liði en einnig eigast við KR og Grindavík.

En Keflavíkurdrengir eru EKKI komnir í hóp hinna fjögurra fræknu enn, þó útlitið sé bjart. Fyrri leikurinn gegn Hamri endaði nefnilega með öruggum 30 stiga útisigri, 65-95, og verða Hamarsmenn því að bursta Keflavík með yfir 30 stiga mun, ætli þeir að slá okkur úr keppninni. Ekkert er öruggt í boltanum, en við höfum a.m.k. ástæðu til að vera bjartsýn fyrir hönd okkar félags. Kannski nota þjálfararnir tækifærið og leyfa þeim að spreyta sig sem minna hafa leikið hingað til.

Sigurvegari þessarar viðureignar (Hamar - Keflavík) mætir síðan Tindastóli í undanúrslitunum en hinu megin er hreinn Suðurnesjaslagur, Njarðvík - Grindavík.

Ólafur Ófeigur Jónsson "tölfræðigúru" gerði allherjar úttekt, eins og honum einum er lagið, á hinum fjóru fræknu fyrir keppnina í fyrra og má skoða greinar hans á vefsvæði KKÍ.

Hin fjögur fræknu - heildaryfirlit 1996-2001

Hin fjögur fræknu - tölfræðisaga leikmanna 1996-2001

Hin fjögur fræknu - tölfræðisaga félaga 1996-2001

Hin fjögur fræknu kvenna - heildaryfirlit 2000-2002