Keflavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð á morgun
Úrslitaeinvígi Keflavíkur og Snæfels heldur áfram á morgun þegar fjórði leikur Íslandsmeistara Keflavíkur og Hópbílameistara Snæfels fer fram í Fjárhúsi þeirra kl 14.00. Ég held að það geti allir sæst á þetta séu tvö bestu lið Íslands í dag. Leikirnir hafa líka verið mjög skemmtilegir, spennandi og dramtískir. Fyrsta leikinn vann Keflavík á heimavelli 90-75 sá sigur var frekar öruggur þó leikurinn hafi verið spennandi fram í fjórða leikhluta. Leikur tvö á Stykkishólmi var mjög spennandi og sigur gat fallið hvorum megin. Sá leikur endaði 97-93 og staðan því í einvíginu 1-1. Þriðji leikurinn sem var í Keflavík á fimmtudag, var heldur betur spennandi og endaði með 86-83 sigri Keflavíkur. Leikurinn á mörgun verður án efa ekki síðri en hinir þrír, spennandi alveg fram á síðustu sek.
Keflavíkurliðið er í Borgarnesi og verður þar fram að leik. Við minnum á rútuna sem fer frá Sunnubraut kl 10.00 í fyrramálið. Svo hvetjum við alla Keflavíkinga að mæta á leikinn á morgun. Tilvalið að fá sér laugardagsrúnt upp í Stykkishólm og hvetja sína menn. Áfram Keflavík