Fréttir

Körfubolti | 20. febrúar 2005

Keflavík-Hamar/Selfoss í kvöld

Hamar/Selfoss kemur til Keflavíkur í kvöld í 19 umferð Intersportdeildar. Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði lið. Hamar/Selfoss á möguleika á að ná 8 sæti deildarinnar og er þar í baráttu við Grindavík og Hauka. Keflavík tapaði fyrri leiknum í Hveragerði 92-86 mjög óvænt enda strákarnir að koma beint úr ferðalagi frá Frakklandi og sennilega einhver þreyta í gangi.

Nokkrir athyglisverðir leikir fara fram í kvöld. Fjölnir og Njarðvik mætast í Grafarvogi og eru liðin jöfn fyrir leik kvöldsins með 24 stig. ÍR og Snæfell mætast í Seljaskóla, KFÍ og KR á Ísafirði og Tindastóll fær Skallgrím í heimsókn sem burstaði Fjölnir í síðustu umferð. Leikir kvöldsins hefjast kl 19.15.

Sverrir átti stórleik gegn Grindavík í seinustu umferð.