Fréttir

Körfubolti | 18. október 2004

Keflavík-Haukar í kvöld

Næsti leikur hjá okkur er í deildinni á fimmtudaginn.  Það eru Haukarnir sem koma í heimsókn til okkar. Haukar enduðu í 5 sæti á síðasta tímabili og spiluðu á móti Njarðvík í 8 liða úrslitum.  Þeir fóru ekki vel úr þeirri rimmu, töpuðu 2-0. Fyrst 100-61 og svo 104-61. Í árlegri spá þjálfara og forráðamanna liðanna var Haukum spáð 6 sæti á komandi leiktíð. Á síðasta tímabili vann Keflavík heimaleikinn við Hauka 93-78 en tapaði í Hafnafirði 90-88. Haukar töpuðu naumlega fyrir nýliðum Fjölnir í fyrstu umferð 87-86 og unnu svo Tindastól 96-58. Þjálfari Hauka er Reynir Kristjánsson eins og undanfarinn ár. Af leikmönum Haukaliðsins má nefna Marel Guðlaugsson, Ingvar Guðjónsson, Halldór Kristmannson, Sævar Harldsson fyrirliða, Predrag Bojovic, Mirko Virjevic  og svo nýji kaninn þeirra John Waller.  John Waller er 194 sm og 90 kg og leik síðast með Old Dominion háskólanum í Bandaríkjunum sem spilar í NCAA deildinni og skoraði 12,6 stig að meðaltali tók 5,3 fráköst og gaf 1,6 stoðsendingu. Nú er bara að mæta á leikinn á fimmtudaginn og sjá fyrsta alvöru heimaleikinn. Svo er líka spennandi að sjá nýja kanann Mike Mathews. Þeir sem sáu hann spila á móti Snæfelli í fyrsta leik leyst vel á hann. Allir á völlinn og áfram Keflavík.