Keflavík hefur titilvörnina í Seljaskóla
Búið er að raða niður leikjum í Intersportdeild og 1. deild kvenna. Íslandsmeistarar Keflavíkur hefja titilvörn sína í Seljaskóla gegn ÍR-ingum. Það er því ljóst að hart verður barist þegar í 1. umferð 13 október.
Aðrir leikir í 1. umferð eru: Fjölnir - KR, UMFG - Haukar, UMFN - Skallagrímur, Snæfell - Hamar/Selfoss og Höttur og Þór.
Í 1.deild kvenna mæta Íslandsmeistarar Keflavíkur ÍS í Kennaraháskólanum. Þá leika bikarmeistarar Hauka gegn UMFG.
Fyrirtækjabikar KKÍ, sem gengið hefur undir nafninu Hópbílabiklarinn undanfarin tvö ár, fer fram í tíunda sinn nk. haust. Höttur, nýliðarnir í úrvalsdeildinni, taka nú þátt í þessari keppni í fyrsta sinn og eru þeir eina nýja félagið í keppninni að þessu sinni. Mótherjar þeirra í 16-liða úrslitum verða Njarðvíkingar.
Keppnin ber jafnan nafn þess fyrirtækis sem styður keppnina hverju sinni og hefur keppnin kallast Lengjubikarinn, Eggjabikarinn, Kjörísbikarinn og Hópbílabikarinn þau níu ár sem keppnin hefur verið haldin.
Í 16-liða úrslitum keppninnar í haust mætast Keflavík - Stjarnan, UMFN - Höttur, UMFG - haukar, KR - Hamar/selfoss, Skallagrímur - Þór Ak., Fjölnir - KFÍ, ÍR - Tindastóll og Snæfell - Valur. Núverandi meistarar í kepninni eru Snæfell. Meira um þetta á kki.is.