Keflavík hrökk í gang í þriðja leikhluta
Keflavík sigraði í kvöld Fsu 68-81 en leikið var á Selfossi. Staðan í hálfleik var 39-35 en Keflavík átti frábæran sprett í þriðja leikluta sem þeir unnu, 11-28. Hörður átti stórleik og var með 29. stig. Gunnar Einarsson setti niður 16 stig, Sigurður Gunnar Þorsteinsson var með 11. stig og Sverri 7.stig.
Næsti leikur liðsins er gegn Grindavík og fer fram í Toyotahöllinni föstudaginn 20. febrúar.