Fréttir

Körfubolti | 28. júní 2005

Keflavík í bikarkeppni Evrópu

Keflavík hefur ákveðið að taka þátt í Evrópukeppninni þriðja árið í röð. Miklar vangaveltur hafa verið á meðal stjórnamanna, þjálfara og leikmanna síðustu mánuði og allir möguleikar skoðaðir.  Það að taka þátt er mjög kostnaðarsamt og því þurfa allir að leggjast á eitt til að þetta takist. Einnig setti sú breyting að leyfa einn kana strik í reikning, enda þau lið sem við spilum við í þessari keppni flest með 2 kana. Þessi keppni hefur einfaldlega gert það mikið fyrir liðið og Íslenskan körfubolta í heild sinni að erfitt er að halda ekki ævintýrinu áfram. Þetta verður þriðja árið í röð sem við tökum þátt í bikarkeppninni, en sú keppni fær nýtt nafn á næsta ára vegna skipulagsbreytinga í kjölfar samning FIBA-Europe og ULEB. Árangur okkar í keppninni undanfarin ár hefur verið mjög góður og hefur vakið verðskuldaða athygli bæði innan lands og utan. Hér fyrir neðan er nokkrar myndir úr ferðalögum okkar í keppninni.

Hitað upp fyrir leik í Árósum.


Leikhlé í leik á móti Fribourg í Sviss.

Jonni, Davíð, Nick og Gunni vel krumpaðir í morgunmat.

Lestarferð í löngu ferðalagi í Danmörk/Portugalferðinni.

Biggi að senda stöðu með sms heim, sem færð var beint inn á heimsíðuna

Stjórnarmenn og fararstjórar hressir í Sviss.

Men in black klárir í slaginn.