Keflavík í efsta sæti deildarinnar eftir 22ja stiga sigur á Fjölni
Leikurinn í kvöld var kaflaskiptur, eins og svo margir körfuboltaleikir eru. Keflavík byrjaði vel, en einnig Fjölnir og hittnin var góð hjá báðum liðum. Staðan 28-22 fyrir Kef eftir fyrsta leikhluta. Síðan kom einn lélegasti leikhluti Keflavíkur í langan tíma og sigu ákveðnir Fjölnismenn framúr, unnu leikhlutann 21-8 og leiddu í hálfleik 43-36. Einbeitingarleysið náði tökum á okkar mönnum og engu líkara var en að þeir væru farnir að hugsa um jólafrí og stórsteikur.
En Sigurður og Falur hafa farið yfir málin með mönnum í hálfleik og líklegt verður að telja að leikmenn hafi áttað sig á því að Fjölnisliðið er sprækt og engin tilviljun að þeim hafi gengið vel. Kefarar mættu ákveðnari til leiks í seinni hálfeik og fór maður loks að kannast við sína menn. Forysta gestanna hvarf eins og dögg fyrir sólu og Keflavík náði öruggum tökum á leiknum. Munurinn var lengst af 5-10 stig og ljóst var í hvað stefndi. Þegar um fjórar mínútur lifðu leiks gáfust Fjölnismenn upp gegn stöðugri pressuvörn Keflavíkur og gerðu sig seka um mörg mistök. Keflvíkingar færðust í aukana og kláruðu leikinn með stæl. Lokastaðan var 96-74. Seinni hálfleikur fór því 62-31.
Jonni átti aftur stórleik í kvöl og var svakalegur í vörninni, varði skot (alls fjögur), stal boltum og orsakaði mörg mistök hjá andstæðingunum. Einnig var hann drjúgur við stigaskorunina. Tony var stigahæstur (27) og Maggi komst í stuð í lokin, gerði alls 20. Nick hélt uppteknum hætti og var líflegur. Annars var liðið frekar jafnt, menn voru sameiginlega lélegir í fyrri hálfleik, en tóku sig sameiginlega á í þeim seinni. Það var fyrst og fremst varnarleikurinn sem gerði gæfumuninn, eins og svo oft áður. Flestum liðum reynist afar erfitt að berjast við stífa pressu- og gildruvörn nánast allan tíman. Ef þreyta eða smá einbeitingarleysi gerir vart við sig, þá er Keflavíkurvörnin búinn að éta sóknina og akkúrat það gerðist í seinni hluta leiksins.
Innan skamms verður tölfræðin hér.
Annars virkaði Fjölnisliðið nokkuð öflugt. Hlutverkaskipting er skýr og íslensku strákarnir berjast vel í vörninni og taka frí skot þegar þau bjóðast. Nemjana Sovic er hörku leikmaður sem nýtist liðinu vel í vörn og sókn. Darrel Flake, sá ágæti leikmaður, sá vart til sólar gegn Tony og Jeb Ivy var orðinn full ákafur í þristum úr slökum færum. En það er ljóst að þessir nýliðar munu ekki falla beint niður í fyrstu deild eins og oft er hlutskipti slíkra. Þeir leika agað miðað við "nýtt" lið og eiga eftir að standa sig.
Þau óvæntu tíðindi gerðust í Hafnarfirði að Haukar lögðu Njarðvík í framlengdum leik, 91-83. Staðan er nú þannig að þrjú lið eru með 16 stig eftir fyrri hluta Intersport deildarkeppninnar, Keflavík, Njarðvík og Snæfell. Snæfellingar geta aldrei verið fyrir ofan lið sem hafa jafn mörg stig og þeir sökum dómsins sem þeir fengu á sig um daginn. Því eru Keflavík og Njarðvík í tveimur efstu sætunum og þar sem Kef vann innbyrðis viðureignina eru okkar menn komnir á toppinn í deildinni, frekar óvænt, og fá að vera í efsta sætinu í jólafríinu.
Nú er komið að langþráðu fríi og munu menn eflaust hvíla sig vel í nokkra daga og mæta endurnærðir til leiks á nýju ári. Þá verður skammt stórra högga á milli; bikarkeppni, deild og Evrópukepnin, alls 8 eða 9 leikir í janúar.