Keflavík í efsta sæti eftir sigur á Blikum
Keflavík er efst í Iceland Express-deild kvenna eftir að hafa sigrað þrjá fyrstu leika sína. Þær sigruðu í gær lið Blika með alls 56 stigum, 56-106. Staðan í hálfleik var 25-48. Stighæstar í leiknum voru Reshea með 28 stig, Birna V. með 22 stig (2/3 í þriggja og 10/10 í vítum), Rannveig 16 stig, María Ben 15 (8 fráköst) og Kara með 12 stig