Keflavík-ÍS í kvöld kl 19.15
Keflavík fær ÍS í heimsókn í kvöld í 1. deild kvenna kvöld. Keflavík getur svo gott sem tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri í kvöld. Þær hafa reyndar ekki tapað leik síðan Alex Steward gekk til liðs við þær 9. febrúar, áður höfðu þær tapað fjórum leikjum í röð. Liðin hafa mæst fjórum sinnum í vetur og hafði Keflavík sigrað í þeim öllum nema þeim síðasta. Sá leikur fór 64-48 fyrir ÍS. Leikurinn í kvöld er kl. 19.15.