Fréttir

Keflavík Íslandsmeistari í 7. flokki stúlkna
Karfa: Yngri flokkar | 15. apríl 2013

Keflavík Íslandsmeistari í 7. flokki stúlkna

Stelpurrnar í 7. flokki urðu í Íslandsmeistarar í gær þegar þær lögðu Grindavík af velli í úrslitaleik 47-26 en úrslitamótið fór fram í Toyotahöllinni.

Keflavík byrjaði leikinn af miklum krafti og náðu strax góðu forskoti sem þær héldu út leikinn og þrátt fyrir ágæta spretti hjá Grindavíkurstúlknum á köflum þá virtist aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi í þessum leik.

Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur sendir stúlkunum hamingjuóskir með titilinn og flott keppnistímabil og einnig fá  þjálfari þeirra Björn Einarsson og aðstoðarmaður hans Sigurður Guðmundssoni þakkir fyrir gott starf.

Myndina tók Skúli Sig. á karfan.is.