Fréttir

Körfubolti | 4. mars 2005

Keflavík kláraði Fjölnir í gær og mætir Grindavík í 8 liða úrslitum.

Keflavík kláraði síðasta leikinn í deildinni í gær þegar þeir unnu Fjölni í Gravarvogi108-113. Keflavík hafði nauma forustu mest allan leikinn og staðan í hálfleik 55-56. Nick Bradford var búinn að skora 24 stig á þessum kafla, en var ekki að spila góða vörn frekar en aðrir leikmenn liðsins.  Spennan hélt áfram í seinni hálfleik en Maggi skoraði 10 stig í röð í byrjun þriðja leikhluta og dugði það forskot sem þar náðist til loka.  Góður sigur og Keflavík með 36 stig á toppnum, fjórum stigum meira en næsta lið Snæfell.  Nick var öflugur í stigaskorinu í gær, skoraði 35 stig. Tony skoraði 28 stig og tók 10 fráköst, en vítanýting var slök 8/3, 37,5 %.  Maggi skoraði 19 stig, 4 þristar og Gunnar E. skoraði 12 stig.

Það er ljóst eftir leiki gærkvöldsins að Keflavík mætir Grindavík í 8 liða úrslitum og er fyrsti leikurinn á fimmtudaginn í Keflavík. Snæfell mætir KR, Njarðvík mætir ÍR og nýliðarnir Fjölnir og Skallagrímur mætast.

Keflavík og Grindavík mætast í 8 liða úrslitum.