Keflavík komið í hóp hinna fjögurra fræknu í Hópbílabikarnum
Það fór eins og við höfðum búist við, Keflavík tryggði sér þátttöku í keppni "hinna fjögurra fræknu" í Hópbílabikarnum í kvöld. Keflavík vann tíu stiga sigur, 77-67 eftir að hafa leitt með 20 stigum í hálfleik, 43-23.
Leikurinn fór fjörlega af stað og fór Jón N Hafsteinsson fyrir heimamönnum. Hann átti teiginn báðu megin á vellinum og skoraði grimmt. Jonni hirti alls 14 fráköst í leiknum. Þjálfarnir hvíldu þá Nick og Derrick stærstan hluta tímans og létu aðra um að leysa þetta verkefni.
Davíð Jónsson fór fremstur í flokki Keflvíkinga í leiknum og átti mjög góðan dag. Hann skoraði alls 21 stig og setti niður 5 þrista. Eftir fjörlegan fyrri hálfleik datt botninn svolítið úr leik okkar manna, en þó var sigurinn aldrei í hættu. Halldór átti ágætan leik og skoraði m.a. tvo þrista, líkt og Sævar sem lék mikið í kvöld. Flestir bakverðirnir léku ágætlega þó stundum hafi sóknarleikurinn verið hálf stíflaður í seinni hálfleik.
En leikurinn bar þess þó merki að um formsatriði væri að ræða og sýndu gestirnir frá Hveragerði aldrei verulega tilburði í þá átt að reyna að vinna leikinn.
Keflavík mætir Tindastóli og Njarðvík mætir Grindavík í keppninni um Hópbílabikarinn. Undanúrslitin verða föstudagskvöldi 21. nóv. og úrslitin strax laugardaginn á eftir, þann 22. nóv. Mikið fjör í vændum þar og hefur Keflavík titil að verja.