Fréttir

Körfubolti | 16. september 2004

Keflavík lá fyrir Haukum í kvöld á Reykjanesmótinu

Hann var á bak og burt i kvöld krafturinn sem einkenndi leik liðsins gegn Njarðvík á þriðjudaginn. Liðið lék einfaldlega illa og uppskar eftir því. Leikurinn endaði 77-83. Nýr maður var í liðinu, Jimmy Miggins, og náði hann engan veginn að sýna hvað í honum býr. Anthony Glover var ágætur og greinilegt að þar fer góður leikmaður sem aðeins á eftir að koma sér í form.

Sóknarleikur okkar manna gekk ekki upp og hafði liðið t.d. aðeins skorað 15 stig eftir 15 mín í fyrri hálfleik gegn 30 stigum Haukanna. Eftir það hresstist mannskapurinn örlítið, en ekki nóg. Halldór átti ágæta spretti, og var ásamt Glover skásti maður liðsins.

Næsti leikur er á mánudaginn og þá leikur Keflavík annað hvort um 1. eða 3. sætið í Reykjanesmótinu. Á miðvikudaginn verður síðan haldið í keppisferð til Noregs þar sem við spreytum okkur gegn sterkustu félagsliðum Norðurlanda. Þá gefst væntanlega tími til að slípa leik liðsins og finna taktinn.

Tölfræði úr leiknum verður kominn á www.kki.is seinna í kvöld.