Keflavík lagði Breiðablik 77-65 í Reykjanesmótinu
Fyrr í kvöld þreyttu þeir Guðjón og Falur frumraun sína sem þjálfarar Keflavíkur þegar lið þeirra mætti Breiðabliki í Hafnarfirði á Reykjanesmótinu. Leikurinn var jafn framan af og í hálfleik var staðan 42-40 fyrir okkar mönnum. Í byrjun seinni hálfleiks þéttist vörnin og Breiðablik fann ekki leiðina að körfunni, þrátt fyrir töluverðan hæðarmun. Við upphaf síðasta leikhlutans var munurinn orðinn 12 stig, 60-48, og hélst nokkuð stöðugur til endaloka. Leikurinn endaði 77-65.
Guðjón og Falur voru sáttir eftir leikinn enda voru leikmenn grimmir í seinni hálfleiknum. Arnar Freyr lék vel og Gunnar Einarsson og Jón Nordal áttu alls kostar við miklu stærri menn undir körfunum, en áberandi var hversu lágvaxið lið okkar var.
Í liðið vantaði Halldór Halldórsson og Sverrir Sverrisson, en þeir eru meiddir. Enginn Kani var í liðinu, en von er á Könunum undir lok næstu viku. Breiðablik var einnig án Kana, en þeir hafa endurheimt Júgóslavan frá því í fyrra, en sá er ansi lipur stór strákur.
Sem sagt, ágætis byrjun hjá nýju þjálfaranum.