Fréttir

Körfubolti | 5. júlí 2004

Keflavík leikur gegn dönsku meisturunum Bakken Bears, franska liðinu Reims og Madeira frá Portúgal í FIBA Bikarkeppni Evrópu

Eins og glöggir lesendur hafa séð þá var dregið og raðað í riðla í Fiba Bikarkeppni Evrópu í München s.l. laugardag. Vegna þess hvernig liðin 33 raðast á deildir (Vestur, Mið, Norður og Suður) þá hafa Vestur og Miðdeildir verið sameinaðar, en þar leika 12 lið í þremur riðlum.

A-riðill

  • Keflavik
  • Reims Champagne, Frakklandi
  • Bakken Bears, Danmörku
  • CAB Madeira, Portúgal

Í hinum tveimur riðlunum leika átta lið frá Sviss, Portúgal, Ungverjalandi, Tékklandi og Slóvakíu. Af þessum 12 liðum munu 8 komast áfram í keppninni, tvö efstu liðin í hverjum riðli og þau tvö stigahæstu af þeim sem eftir eru. Þannig gefa eingöngu tvö efstu sætin örugglega rétt á framhaldi.

Telja má líkur Keflavíkur a.m.k. þokkalegar, ef mark er tekið á árangrinum í fyrra. Þó er ljóst að Reims er afar sterkt lið, ekki ósvipað Dijon, og einnig eru Bakken Bears sterkir, en þeir hafa nánast verið einráðir í danska körfuboltanum :á liðnum árum.

Leikjum hefur verið raðað niður sem hér segir:

  • 3. nóv. Keflavík – Reims
  • 10. nóv. Keflavík – Madeira
  • 18. nóv. Keflavík – Bakken Bears
  • 23. nóv. Reims – Keflavík
  • 7. des. Bakken Bears – Keflavík
  • 9. des. Madeira – Keflavík

Meira verður sagt frá andstæðingum okkar þegar nær leikdögum færist, en nánari upplýsingar má fá á heimasíðu keppninnar.