Fréttir

Körfubolti | 25. september 2004

Keflavík leikur til úrslita í Nordic Challenge!

Finnsku meistararnir frá Kouvot unnu sannfærandi sigur á norsku meisturunum frá Bærum fyrr í kvöld (staðan var 95-69 rétt fyrir leikslok, en við höfum ekki fengið lokastöðuna). Þetta þýðir að Finnarnir hafa fullt hús stiga eftir riðlakeppnina, en Bærum, Keflavík og Norrköpping eru öll með 2 stig. Það eru því úrslit úr innbyrðis viðureignum sem ráða röð þessarra þriggja liða og fleytir stórsigur Keflavíkur á Norrköpping okkar mönnum í annað sætið og veitir þar með þátttökurétt í úrslitum mótsins. Glæsilegt strákar og til hamingju með það!

Staðan að lokinni riðlakeppninni er því þessi:

1. Kouvot (F): 3 sigrar, ekkert tap = 6 stig

2. Keflavík (Í): 1 sigur, 2 töp = 2 stig, +21 stig í innbyrðis viðureignum

3. Bærum (N): 1 sigur, 2 töp = 2 stig, -3 stig í innbyrðis viðureignum

4. Norrköpping (S): 1 sigur, 2 töp = 2 stig, -18 stig í innbyrðis viðureignum

Á morgun fara því eftirtaldir leikir fram

  • Kl. 15.00 Úrslitaleikurinn: Kouvot - Keflavík
  • Kl. 17.00 Leikið um 3ja sætið: Bærum - Norrköpping

Við höfum fengið fregnir af því að leikurinn verði sýndur beint á TV2 í Noregi og gæti því sést á Íslandi. Þessar fréttir eru reyndar óstaðfestar, en við munum láta vita um leið og við höfum þetta á hreinu.