Fréttir

Körfubolti | 10. desember 2004

Keflavík mætir Bentton Friburg frá Sviss í 8 liða úrslitum

Þrátt fyrir tvo ósigra á erlendri grundu í vikunni eru Keflvíkingar komnir áfram og hafa áunnið sér heimavallarréttinn í seinni leiknum í átta liða úrslitum.

Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þeim tólf liðum sem sem kepptu í Mið- og Vesturdeildum var raðað upp eftir stigafjölda og stigaskori. Þetta er með öðrum hætti en okkur hafði skilist, en þetta þýðir að lið sem er í þriðja sæti í einum riðli getur verið ofar en lið í öðru sæti í öðrum riðli. Enda lenti Fribourg í 5. sæti "overall" þrátt fyrir að vera aðeins í 3ja sæti í riðli sínum, en Mlekarna lenti í sjötta yfir heildina en var í öðru sæti í sínum riðli. Þetta er ekki ósvipað sýstem og notað er þegar menn raða liðum í sæti fyrir úrslitakeppnina í NBA.

Röðin var sem hér segir:

Röð

Röð í riðli

Félag

Land

Stig

Skor +

Skor -

Munur

1 

1 

Decin

Tékkland

12 

515 

421 

94 

2 

1 

Albacomp

Ungverjaland

11 

556 

496 

60 

3 

1 

Bakken

Danmörk

10 

474 

477 

(       3 )

4 

2 

Keflavík

Ísland

9 

565 

545 

20 

5 

3 

Fribourg

Sviss

9 

499 

491 

8 

6 

2 

Mlekarna

Tékkland

9 

450 

443 

7 

7 

3 

Madeira

Portúgal

9 

496 

521 

(     25 )

8 

2 

Boncourt

Sviss

9 

485 

542 

(     57 )

9 

4 

Reims

Frakkland

8 

502 

494 

8 

10 

4 

Belenenses

Portúgal

8 

499 

499 

0 

11 

3 

Brno

Tékkland

8 

521 

524 

(       3 )

12 

4 

Lucenec

Slóvenía

6 

391 

500 

(   109 )

Liðum er raðað þannig að 1 leikur gegn 8, 2 gegn 7, 3 gegn 6 og 4 gegn 5.

Leikið er heima og heiman og gilda samalögð úrslit úr leikjunum tveimur. Það telst betra að eiga heimaleikinn seinna, og fá félög nr. 1-4 þann heiður. Þess skal getið að hér er um breytingu að ræða frá því í fyrra þegar vinna þurfti tvo leiki í 8 liða úrslitunum. Nú þarf sem sagt að vinna samanlagt úr tveimur leikjum, líkt og í Hópbílabikarnum.

Sem sagt, dagskráin er þess

  • Decin (1) - Boncourt (8)
  • Albacomb (2) - Madeira
  • Bakken (3) - Mlekarna (6)
  • Keflavík (4) - Fribourg (5)

Leikdagar eru 13. jan. 2005 (útileikur) og 20. jan. 2005 (heimaleikur).

Benetton Fribourg er í Sviss, skammt sunnan við höfuðborgina Bern. Það er merkilegt að Fribourg hefur staðið sig betur en Boncourt í Evrópukeppninn, en í svissnesku deildinni er þessu öfugt farið. Þar er Boncourt ósigrað með 20 stig eftir 10 leiki, en Fribourg hefur strögglað upp á síðkastið og er dottið niður í 9. sætið eftir góða byrjun með 10 stig eftir 10 leiki.

Þetta er frábært hjá Kef og nú stöndum við aðeins betur en í fyrra, þar sem andstæðingarnir frá Dijon voru/eru sterkari en Fribourg. Möguleikarnir á að komast amk. einu skrefi lengra eru því vissulega fyrir hendi.

Hér að neðan má sjá hvernig sýstemið virkar: