Fréttir

Körfubolti | 14. nóvember 2002

Keflavík mætir Borgarnesi í Bikarnum

Keflavík A fer í Borgarnes en Keflavík B á Hlíðarenda.

Dregið var í 32-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ & DORITOS í gær. Stórleikur 32-liða úrslitanna er vafalaust viðureign Reykjavíkurliðanna ÍR og KR. Tvær aðrar viðureignir eru milli liða í INTERSPORT-deildinni en það eru viðureignir Skallagríms og Keflavíkur og Breiðabliks og Snæfells. Þá munu bikarmeistarar UMFN sækja Smárann heim í Varmahlíð. B-lið Keflavíkur mun leika gegn úrvalsdeildarliði Vals.

Þessi lið mætast í 32-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ & DORITOS:

Valur - Keflavík b

Ármann/Þróttur - KFÍ

HK - Höttur

Selfoss/Laugdælir - Tindastóll

Breiðablik - Snæfell

Skallagrímur - Keflavík

Grundarfjörður - Hamar

Þór Þorl. - Selfoss/Laugdælir b

Smári - UMFN

ÍR - KR

Fjölnir - Haukar

Stjarnan - UMFG

ÍS, Reynir S., Reynir H. og KR b sitja hjá.

Leikið verður 29. nóvember - 1. desember.