Keflavík mætir Breiðabliki í Reykjanesmótinu
Fyrsti leikur Keflavíkurliðsins undir stjórn nýja þjálfarateymisins, Fals og Guðjóns, verður háður annað kvöld, fimmtudag, í Hafnarfirði, að Ásvöllum. Leikið verður gegn Breiðabliki og hefst leikurinn kl 19.00. Að honum loknum leika Haukar og Grindavík.
Keflavík er enn án Kana og auk þess er Halldór senter Halldórsson fjarverandi vegna meiðsla sem hann hlaut á hné á dögunum. Meiðslin eru þó ekki talin alvarleg og reiknar Halldór með því að geta hafið æfingar að nýju á næstu dögum. En þó Halldór vanti er örugglega nóg af bakvörðum . . .