Fréttir

Körfubolti | 14. mars 2004

Keflavík mætir Grindavík í undanúrslitum kvenna

Andstæðingar okkar í kvennaboltanum í fyrstu umferðinni í úrslitakeppninni eru frá Grindavík. Þær stúlkur léku afar illa fram að áramótum en með tilkomu bandarísku stúlkunnar Kesha Tardy breyttist snerist leikurinn við. Eftir að hafa aðeins unnið 2 af 10 deildarleikjum fyrir jól unnu þær grindvísku 7 af 10 deildarleikjum eftir jólin. Auk Kanans eru þær Sólveit, Petrúnella og Ólöf öflugastar í stigaskoruninni. En leikurinn snýst alfarið um Tardy, því hún skorar bróðurpart stiganna (26 að meðaltali) og hirðir langflest fráköstin (um 12). Ljóst er því að varnarleikur okkar stúlkna mun beinast að því að gera henni erfitt fyrir. En hún er stór og sterk og ansi lipur og mun það hlutverk vera erfitt, auk þess sem skotfæri geta opnast fyrir hinar í kjölfarið.

Hér má sjá tölur Gindavíkur í deildinni í vetur.

Okkar lið er öllu jafnara eins og menn þekkja, breiddin er mikil og liðsheildin er sterk. Stúlkurnar hafa að mestu leyti leikið vel eftir áramót, og þeim hefur líka tekist að knýja fram sigur þegar þær hafa leikið illa, líkt og í bikarúrslitunum. Alls hafa þær nú unnið 16 leiki í röð. En þrátt fyrir mikið jafnræði, er ljóst að þær Erla Þorsteins, Birna Valgarðs og Anna María eru mikilvægustu stigaskorarar liðsins, enda gera þær að meðaltali 13 – 17 stig á leik. Þær Erla R, Marín og Rannveig stjórna sóknarleiknum og geta allar dottið í stuð, mikilvægt er að þær haldi uppi hraðanum allan tímann. Svava er líka lykilmaður sem getur komið inn í næstum hvaða stöðu sem er, minnisstætt er hvernig hún hélt liðinu inni í leiknum í bikarúrslitunum þegar lítið gekk hjá öðrum. Síðan eru ungu stúlkurnar María Ben og Bryndís sem eru mjög öflugar bæði í vörn og sókn. 10. maðurinn í liðinu hefur yfirleitt verið Halldóra Andrésdóttir og hefur hún leyst þær Önnu og Erlu af.

Hér má sjá tölur Keflavíkur í deildinni í vetur.

Mikilvægt er að stúlkurnar mæti grimmar til leiks því hraðinn vinnur með okkur, það vita allir. Grindavík mun eflaust reyna að hægja á leiknum og koma boltanum á Tardy, en Keflavíkurvörnin verður þétt og síðan verða hraðupphlaupin að dynja á Grindvíkingum, ef vel á að fara. Skemmtilegur leikur framundan – Áfram Keflavík!!!