Fréttir

Karfa: Konur | 19. desember 2007

Keflavík mætir Hamar í kvöld. Kesha stighæsti í vetur með 28.6 stig

Keflavíkurstelpur mæta Hamar í Iceland Express deild kvenna í kvöld kl. 19.15 í Keflavík.  Keflavík er á toppnum ásamt KR sem mætir Grindavíkurstelpum á sama tíma.

Hamar er í 6. sætir með 4. stig en Keflavik sigraði í síðasta leik liðanna sem 70-81 sem fram fór í Hveragerði.  Pálína var með 19 stig, Kara 18 og Ingibjörg og Hrönn voru með 14. stig hvor í þeim leik. Stighæst leikmanna Hamars er fyrrum leikmaður okkar LA Barkus með 28.5 stig í leik.

Stighæstar í vetur;

Kesha     28,6 stig og 7.5 fráköst
Bryndís   20 stig og 5.3 fráköst
Pálína     12.9 stig og 5.8 fráköst
Kara       12.5 stig og 10 fráköst
Rannveig  9.6 stig og 4 fráköst
Ingibjörg  8.5 stig og 5.6 fráköst
Marín       8.2 og 4 fráköst

Rannveig er að spila sitt besta tímabil til þessa, 9.6 stig í leik.