Fréttir

Körfubolti | 19. október 2003

Keflavík mætir Hamri í Hópbílabikarnum eftir létta æfingu gegn Ármanni/Þrótti

Það kom ekki á óvart að Keflavík vann yfirburðasigur gegn 1. deildar liði Ármanns/Þróttar. Ekki mikið um það að segja enda getumunurinn gríðarlegur. Leikurinn endaði með 62ja stiga sigri, 112-60. Ungu strákarnir voru í aðalhlutverkum, Halldór Halldórsson skoraði t.d. 14 stig og hirti 12 fráköst og Arnar F Jónsson átti 11 stoðsendingar, auk þess sem hann skoraði 7 stig og hirti 6 fráköst. Sævar Sævarsson skoraði 11 stig, en fékk 5 villur á aðeins 13 mánútum. Gunnar Einarsson setti 6 þrista oní úr 10 tilraunum og var stigahæstur með 22 stig.

Í átta liða úrslitum mætum við Hamarsmönnum sem slógu Snæfell út, frekar óvænt.

Hér má sjá tölur úr leiknum.