Keflavík mætir Haukum að Ásvöllum í kvöld
Keflavík mætir Haukum á Ásvöllum í kvöld kl 19.15. Haukar eru sem stendur í 10 sæti úrvalsdeildar eftir 15 umferðir, 5 sigrar og 10 töp. Í síðustu umferð unnu þeir KFí á Ísafirði 95-101 eftir framlengingu. Keflavík og Haukar mætust 21 okt. í Keflavík og fór sá leikur 89-82 fyrir Keflavík. Tölfræði úr leiknum hér Keflavík - Haukar. Leikurinn í kvöld er mikilvægur fyrir bæði lið, Keflavík þarf að vinna til að halda toppsætinu og Haukum vantar stig í fallbaráttunni sem framundan er. Haukar létu John Waller fara frá félaginu nýverði enda var framlag hans til liðsins dapurt eftir jólasteikina. Predrag Bojovic ( Kuki ) sem spilaði með þeim áður en þeir fengu sér seinni kanann, spilar með þeim í leiknum á móti Keflavík fáist það samþykkt af KKÍ.
