Keflavík mætir Haukum og Njarðvík í Bikarnum
Keflavík mætir Haukum og Njarðvík fær Grindavík í heimsókn í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ & DORITOS, en dregið var í dag. Það má því sanni segja að það verði stórleikir milli toppliða Intersport-deilarinnar í þessari umferð bikarsins. Í kvennaflokki hefja bikarmeistarar KR titilvörnina í Hveragerði og Keflavík mætir UMFN í Njarðvík. Drátturinn var sem hér segir:
Konur:
Hamar - KR, UMFN - Keflavík, Keflavík b - Hekla, Laugdælir - Breiðablik, KFÍ - Tindastóll, ÍR - Haukar. ÍS og UMFG sitja hjá.
Karlar:
Keflavík - Haukar, Reynir H. - ÍR, ÍS - Ármann/Þróttur, Tindastóll - Höttur, UMFN - UMFG, Valur - KR b, Hamar - Reynir S. Snæfell - Þór Þorl.
Karlaleikirnir verða leiknir 14. - 16. desember og kvennaleikirnir fara fram 18. desember.
Greinilegt er að okkar fólk dróst á móti góðum liðum, en engu að síður má telja möguleika okkar nokkuð góða á að komast í næstu umferð. Meira um það síðar.