Fréttir

Körfubolti | 17. mars 2005

Keflavík mætir ÍR í undanúrslitum eftir sigur í stórskemmtilegum leik gegn Grindavík

Í kvöld fór fram sannkallaður stórleikur í Sláturhúsinu í Keflavík þegar heimamenn tóku á móti Grindavík í oddaleik í 8-liða úrslitum. Grindvíkingar voru fullir sjálfstrausts eftir sigur í öðrum leik og því var von á háspennu. Og sú varð raunin. Sláturhúsið var troðfullt og stemmingin frábær hjá stuðningsmönnum beggja liða sem hvöttu lið sitt óspart allan tímann. En samt má segja sögu leiksins í stuttu máli, Keflavík skoraði fyrstu körfuna, komst í 2-0, og hélt forystunni til loka leiks. Forystan rokkaði mest frá 5-10 stigum allan tímann, en Grindavík náði aldrei yfirhöndinni. Í lokin var munurinn fimm stig, 80-75. Þessi sigur þýðir að Keflavík er komið í undanúrslit og mætir þar ferskum ÍR-ingum. Fyrsti leikurinn er næstkomandi laugardag. Í hinum leikjunum unnu Snæfell og Fjölnir og þau félög mætast í hinum undanúrslitunum.

Nick Bradford gaf tóninn og var gríðarsterkur á upphafsmínútunum þegar Keflavík byggði upp 8 stiga forskot sem jafnaðist reyndar fyrir lok fyrsta leikhluta, 23-23. Jonni átti körfu dagsins þegar hann flaug í loftið eftir misheppnað vítaskot hjá Nick og tróð frákastinu með tilþrifum. Keflavík byrjaði vel en leikurinn riðlaðist og Grindavík komst inní leikinn, aðallega vegna Boschee og Lewis sem voru erfiðir viðureignar.

Kefarar náðu aftur forystu í öðrum leikhluta og leiddu í hálfleik með sjö stigum, 44-37. Nick var óstöðvandi og hafði í hálfleik skoraði 19 stig og hirt 11 fráköst. Annars voru varnir beggja liða góðar og sóknarleikurinn því oft stirður. Grindvíkingar sýndu að þeir geta vel spilað vörn og gerðu það af miklum krafti mest allan leikinn. Hjá Keflavík var Sverrir Þór ódrepandi að vanda og gerði Boschee lífið leitt, þó vissulega sé sá leikmaður afar snjall og mikil skytta. Nick átti í fullu tré við Lewis allan tímann, en það er erfitt verkefni.

Í seinni hálfleik var spennan mikil, nánast óbærileg. Á stuttum tíma settu Maggi og Arnar niður þrista, en það voru einu þriggja stiga körfur okkar manna í leiknum. Það er af sem áður var, að við bombum andstæðingana í kaf, nú voru það frekar gestirnir sem voru skeinuhættari utan 3ja stiga línunnar. En munurinn hélst, eins og áður sagði, og Glover átti yfirleitt greiða leið að körfunni þegar hann tók sig til, þótt hjálparvörn Grindjána hafi verið miklu öflugri nú en yfirleitt í vetur. Fyrir síðasta fjórðung var staðan 60-56. Aðeins fjögurra stiga munur og spennan í hámarki, andrúmsloftið í húsinu var rafmagnað.

Síðasti fjórðungur einkenndist af taugaveiklun til að byrja með. Bæði lið lögðu ofurkapp á góðan varnarleik, en að sama skapi skorti töluvert á áræðni í sóknarleiknum. Helst voru það þó Keflvíkingar sem gátu nýtt sér hraðann eftir misheppnaðar sóknir Grindvíkinga og keyrt upp völlinn. Með slíku móti skoraði t.d. Nick tvær körfur í röð og svo kom Jonni með tvö gríðarlega mikilvæg sóknarfráköst á stuttum tíma og setti boltann oní í kjölfarið. Þessar körfur gáfu Kefurum forskot sem Grindavík náði aldrei að brúa þrátt fyrir örvæntingarfullar tilraunir í lokin. Það fór þó um stuðningsmenn heimaliðsins þegar hvert vítið fór forgörðum í lokin, en Maggi Gunn kom sterkur inn á vítalínuna og gulltryggði sigurinn þegar um hálf mínúta lifði leiks.

Leikurinn var hin allra besta skemmtun og þökkum við Grindvíkingum fyrir góða leiki og drengilega baráttu. Þeir sýndu það í þessum leikjum að það bjó meira í þessu liði en þeir náðu að sýna í deildinni í vetur. En Keflavík sýndi einnig ótrúlegan sigurvilja, þrátt fyrir að sóknarleikurinn hafi verið langt frá því góður í kvöld. Vörnin var hins vegar frábær sem og keyrslan. Nick, Jonni og Sverrir áttu allir stórleik, bæði í vörn og sókn. Maggi hitti illa, en var engu að síður ógnandi og stóð sína plikt vel í vörninni. Glover var öflugur en hefði getað skorað mun meira. Gunni kom lítið við sögu og greinilega ekki búinn að ná sér. Arnar átti spretti en verður að klára opnu færin sín betur. Davíð átti fína innkomu eins og Elentínus sem sýndi mikið baráttuþrek og hugrekki þótt honum hafi brugðist bogalistin á vítalínunni, en það kom ekki að sök.

Hjá Grindavík voru Boschee og Lewis langbestir. Helgi náði ekki öðrum stjörnuleik og Páll Axel losnaði sjaldan úr strangri gæslu. Terrel Taylor var drjúgur í fráköstunum en nýtti færin sín illa, mátti sín lítils gegn Glover. En vörn Grindjána var sterk.

Vörn okkar manna var afar sterk í seinni hálfleik, en misjöfn í þeim fyrri, ekki síst þegar breytt var yfir í svæðisvörn. Þá gengu skyttur gestanna á lagið og skouðu grimmt. Maður leiksins var Nick Bradford með 29 stig, 16 fráköst og 6 stoðsendingar.

Til hamingju með þetta Keflvíkingar og velkomnir í Sláturhúsið ÍR-ingar!