Fréttir

Körfubolti | 18. mars 2005

Keflavík mætir ÍR í undanúrslitum. Spáð í spilin.

Á morgun hefjast undanúrslitin á Íslandsmótinu í körfubolta karla. Óhætt er að segja að 8-liða úrslitin hafi boðið upp á mikla skemmtun og spennu, nú er spurning hvort því verði fylgt eftir með sama fjörinu í undanúrslitunum. Heimasíðan telur reyndar að töluverður getumunur sé á liðunum í undanúrslitunum, en samt skal alls ekki útilokað að einvígin verði skemmtileg.

Á sunnudaginn er "hin" viðureignin, Snæfell - Fjölnir. Snæfell á að sigra Fjölni nokkuð auðveldlega, jafnvel þó þeir tapi einum leik. Hér þarf ekki annað en að bera saman mannskap liðanna, þá sést í hverju yfirburðir Snæfells eru fólgnir. Fjölnir hefur hugsanlega betri útlendinga (og fleiri) en þegar litið er til Íslendinganna í liðinu er einfaldlega klassamunur á liðunum. Fjölnir hefur staðið sig mjög vel í vetur og hlutverkaskipting innan liðsins er nokkuð skýr. Kannski fleytir það þeim enn lengra, en heimasíðan telur að styrkleikamunur sé of mikill. Við spáum því öruggum 3-0 eða 3-1 sigri Snæfells í þessari viðureign.

Keflavík mætir ferskum ÍR-ingum sem afar óvænt slógu Njarðvíkinga úr leik. Það sem vakti athygli var ekki síðast mikil barátta og stemming sem virtist vera í liðinu. Slíkt er vænlegt til árangurs og eflir stundum sjálfstraustið. Ef við kíkjum á ÍR-liðið þá má greina þrjá lykilmenn, Dixon, Grant og Eirík. Dixon er fjölhæfur skorari, Grant vinnuhestur og Eiki prýðileg skytta sem getur gert usla með drævum líka. Keflvíkingar eiga í herbúðum sínum leikmenn sem henta nokkuð vel til að gæta þeirra, t.d. Glover, Nick, Jonna og Sverri Þór.

Á eftir þríeykinu koma nokkrir sprækir strákar, Óli Sig, Fannar, Ómar, Gulli  og svo er Sveinbjörn efnilegur. Þessir strákar leika allir með hjartanu, leggja sig fram og eru feykiduglegir í vörn og fráköstum, ekki síst sóknarfráköstum. Það sást greinilega gegn Njarðvík. Þeir eru kannski ekki sérlega sterkir sóknarlega "einn-á-einn" en geta samt verið erfiðir við að eiga.

ÍR-liðið hefur oft unnið Keflavík á heimavelli sínum í Seljaskóla, en Kefarar hafa náð fáum stjörnuleikjum þar í gegnum tíðina. Hins vegar hafa ÍR-ingar sjaldan sótt gull í greipar okkar manna í Sláturhúsið. Lykilatriðið í þessu einvígi fyrir okkar menn verður því að verja heimavöllinn, en þar erum við taplausir í úrslitakeppni í þrjú ár, og reyna að stela öðrum hvorum útileiknum. Aðalatriðið er að einbeitingin sé í lagi í fyrsta leiknum.

Annars ættu þessir leikir að geta orðið hin mesta skemmtun. ÍR-ingar leika ærslafullan körfubolta og berjast grimmt, þeir eru til í að taka slaginn og keyra upp hraðan þegar svo á við. Sóknarlega eru það Eiki og Dixon sem skapa, en allir geta skorað, sérstaklega þegar stemmingin er þeirra megin, eins og sást í Njarðvík um daginn.

Heimasíðan telur þó að Íslandsmeistarar Keflavíkur séu betur mannað og betur þjálfað lið, þegar á heildina er litið. Það tryggir engan sigur, en spáin er sú að Keflavík vinni þessa seríu. Spurningin er bara hvernig gengur að berjast við Seljaskólagrýluna.