Keflavík mætir KFÍ í kvöld í Slátuhúsinu
Keflavík mætir KFÍ í dag í 14 umferð Intersportdeildar. Kfí hefur átt erfitt uppdráttar í deildinn í vetur og aðeins unnið einn leik. Sá leikur var í síðustu umferð þar sem þeir unnu lið Tindastóll. Kfí fór þá leið að halda áfram að byggja liðið upp og leyfa ungu leikmönnum liðsins að speyta sig og auðlast reynslu. Aðeins einn erlendur leikmaður leikur með þeim, Joshua Helm. Joshua spilar mikilvægt hlutverk í liðinu enda dregur hann vagninn fyrir annas reynslu lítið lið. Guðfaðir körfuboltans á Ísafirði er eins og allir vita Guðjón Þorsteinnson. Guðjón hefur um árabil starfað að körfubolta á Íslandi og er formaður KFÍ um þessar mundir. Þjálfar og leikmaður KFÍ er Baldur Jónasson er hann jafnfram leikreyndasti leikmaður liðsins. Við bjóðum leikmenn Kfí velkomna til Keflavíkur. Og áfram Keflavík
Lið KFÍ. Mynd af heimasíðu þeirra.