Keflavík mætir KR í úrslitum Kjörískeppni kvenna í Smáranum kl. 16 á morgun, laugardag
Heimasíðan hefur mikið rætt um frábæra spilamennsku Keflavíkurstúlkna í vetur. Liðsandinn er góður, baráttan mikil, sjálfstraustið í hámarki og leikurinn hraðari en menn hafa átt að venjast í kvennaboltanum hér á landi. Enda hefur liðið unnið 14 leiki í röð, að meðaltali með um 25 stiga mun (!) og yfirleitt hafa stúlkurnar skorað um og yfir 80 stig í leik. Engin ein "stjarna" er í liðinu, heldur er liðsheildin sterk og hlutverkin vel skilgreind.
En nú er komið að fyrsta úrslitaleik vetrarins og fyrsti titillinn er í húfi. Kjörísbikarinn (fyrirtækjabikarinn) er reyndar eini titillinn sem Keflavík hefur enn ekki unnið í kvennaboltanum, þótt þær hafi leikið til úrslita í þau tvö skipti sem þegar hefur verið keppt um hann. Kannski breytist það núna!
Andstæðingarnir eru "hitt" kvennaliðið til margra ára, KR, en eins og menn vita hafa KR og Keflavík nánast "dóminerað" kvennaboltan á liðnum árum. Leikirnir hafa nánast alltaf boðið upp á það besta í íslenskum kvennakörfubolta, þótt yfirburðir Keflavíkur hafi verið greinilegir það sem af er þessari leiktíð.
Allir vita þó að í úrslitaleik getur allt gerst og árangurinn í deildinni skiptir engu máli þegar í slíkan leik er komið. Það sem hins vegar skiptir miklu máli er sjálfstraustið og sigurviljinn. Ef marka má leiki okkar stúlkna í haust eigum við alla möguleika á fyrsta Kjörísbikar kvenna á morgun. ÁFRAM KEFLAVÍK!