Fréttir

Körfubolti | 20. desember 2004

Keflavík mætir Njarðvík í 8 liða úrslitum

Keflavík fær Njarðvík í heimsókn í 8 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ og Lýsingar. Þetta verður hörkuleikur og eitthvað fyrir stuðningsmenn liðanna að fara að hlakka til. Önnur lið sem mætast eru Fjölnir - Skallagrímur, Hamar/Selfoss - Grindavík og Höttur - Breiðablik. Það er því ljóst að það verður eitt 1 deildar lið í 4 liða úrlslitum þar sem Breiðablik og Höttur drógust saman.

Keflavík mætir ÍS í kvennaflokki.  Aðrir leikir þar eru Breiðablik - Grindavík, Laugdælir - Tindastóll og Haukar - Njarðvík.   Leikirnir fara fram 8 og 9 jan.