Keflavík mætir Njarðvík í Reykjanesmótinu á þriðjudagskvöld
Eins og undanfarin ár má reikna með því að nágrannarnir úr Reykjanesbæ muni blanda sér alvarlega í baráttuna um titla vetrarins. Bæði félög mæta sterk til leiks og töluverð eftirvænting ríkir að venju um hvernig nýju Kanarnir muni reynast, en það skiptir ekki svo litlu máli fyrir velgengnina. Alltaf þegar félögin mætast er hart barist og má gera ráð fyrir sömu baráttu og fyrr á þriðjudaginn, en þá mætast félögin í Reykjanesmótinu.
Evrópukeppni landsliðsins setur þó nokkurt mark á undibúningstímabilið að þessu sinni, þar sem lykilleikmenn úr báðum félögum eru í landsliðsprógrammi og leika líklega ekki með liðum sínum á þriðjudaginn. Þar er um að ræða þá Friðrik og Pál hjá Njarðvík og Arnar, Magnús og Jón Nordal hjá Keflavík. En nóg er samt um leikmenn í báðum liðum og verður gaman að sjá þá kljást.
Eins verður gaman að sjá Anthony Glover berjast undir körfunum, en hann kom til landsins á laugardag og virðist þar vera um ansi öflugan leikmann að ræða, sterkur og kraftmikill. Hinn Kaninn, sem væntanlega verður Jimmy Miggins frá Pepperdine háskólanum er væntanlegur í vikunni.
Fyrir utan landsliðsmennina er Keflavíkurliðið þétt skipað í vetur. Líkt og í fyrra fara framarlega í flokki þeir Gunnar Einarsson, Sverrir Þór Sverrisson, Halldór Halldórsson, Hjörtur Harðarson, Davíð Jónsson og Gunnar Stefánsson. Eins hefur Sævar Sævarsson staðið sig vel á undirbúningstímabilinu og Jón Gauti Jónsson er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki ásamt Þresti Jóhannessyni. Aftur til liðsins er kominn Elentínus Margeirsson og bjóðum við hann velkominn að nýju eftir námsdvöl í Bandaríkjunum.