Keflavík mætir Skallagrím í Borgarnesi í kvöld
Næsti leikur hjá Keflavík er í Borgarnesi í kvöld, þar sem við mætum liði Skallagríms. Skallagrímur kom upp um deild á síðasta tímabili og hefur spilað vel á tímabilinu, er í 6. sæti með 20 stig. Stigahæstir Skallagrímsmanna er Clifton Cook 22,3 stig, Jovan Zdravevski með 20,5 stig og George Byrd með 19,3 stig að meðaltali. Skallagrímur kom í heimsókn til Keflavíkur 2. desember og fór sá leikur 94-67. Þeir hafa verið að spila mjög vel á heimavelli og aðeins KR og Njarðvík náð að landa sigri þar á tímabilinu. Seinast fóru þeir illa með Fjölnismenn, þegar þeir unnu þá 111-74. Skallagrímur leikur án Pálma Sævarssonar í kvöld sem meiddist á fæti í síðasta leik á móti Tindastól.
Aðrir leikir í 20. umferð eru Hamar/Selfoss - Haukar, KR - ÍR, UMFN - Tindastóll, Snæfell - Fjölnir og á föstudaginn UMFG - KFÍ.