Fréttir

Körfubolti | 26. september 2003

Keflavík mætir taplausum Haukum í kvöld

Tvö félög eru enn taplaus í Reykjanesmóti karla 2003, Haukar og Keflavík. Þessi félög hittast á eiturgræna dúknum í Smáranum í kvöld kl. 19.00. Að þeim leik loknum mætast Breiðablik og Njarðvík.

Haukarnir hafa leikið vel og nýi Kaninn þeirra virkar vel, þó tíminn einn muni leiða í ljós hvort hann fylli skarð Stevie Johnson.

Okkar nýju menn, Derrick Allen og Nick Bradfod, mættu á sína fyrstu æfingu í gær og verða klárir í slaginn í kvöld. Þeir voru sprækir í gær, virtust vera í fínu formi og lofa góðu. Derrick er þessi "inside" kall en er gríðarlega fljótur að hlaupa upp völlinn sem mun eflaust henta Keflavík vel. Nick er meiri skotmaður og virðist ansi fjölhæfur leikmaður. En þetta á allt eftir að koma betur í ljós . . . .