Keflavík mætir Þór í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins / Stelpurnar úr leik þrátt fyrir sigur gegn Hamar
Keflavík mætir Þór Þorlákshöfn í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins þrátt fyrir að liðið tapaði stórt gegn Grindavík í gær. Keflavík var fyrir leikinn búið að tryggja sér efsta sætið í A-riðli en Þór endaði í 2. sæti í B-riðli. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 24. september í TM-Höllinni.
Árskortin í efri stúku verða til sölu á leiknum og þá munu Hraðlestarkortin einnig verða afhent við innganginn.
Keflavíkurstúlkur hafa lokið leik í Lengjubikarnum þetta árið þrátt fyrir sigur gegn Hamar sl. laugardag. Keflavíkurstúlkur enduðu í þriðja sæti síns riðils.