Keflavík mætir Tindastól í Lýsingarbikarnum á sunnudag
Keflavík heldur norður í land í annað skipti á stuttum tíma og nú er það Lýsingarbikarinn. Leikurinn hefst kl. 17.00 og fer fram í Íþróttahúsinu á Sauðarkróki og aðstæðingurinn eru lærisveinar Kidda Friðriks. Tindastóll.
Leikurinn 30. nóvember var ekki góður af okkar hálfu og alveg ljóst að menn verða að leggja meira á sig í þessum leik. Í bikarleikjum er allt lagt undir og Tindastólsmenn hafa verið að sækja í sig veðrið upp á síðkastið. Tölfræði úr síðasta leik
Tindstóll fékk til sín nýjan leikmann fyrir stuttu en sá heitir Philip Perry sem undanfarið hefur leikið með KR-b. Hann er englendingur, en hefur leikið víðsvegar í heiminum, en áður en hann kom til KR-b var hann í Tékklandi.
Við reynum að færa ykkur fréttir af leiknum hér
Mynd frá leik liðanna 2006. Magnús Þór Gunnarsson var ekki með í síðasta leik.