Fréttir

Körfubolti | 25. september 2004

Keflavík með góða forystu gegn Norrköpping, allt ennþá mögulegt í mótinu

Norrköpping Dolphins frá Svíþjóð unnu Bærum Verk Jets frá Noregi í gær 103-96. Með þeim sigri opnaðist möguleiki fyrir Keflavík að komast í úrslit. Því ef Kouvot frá Finnlandi vinnur Bærum á morgun, þá getur Kef tryggt sér annað sætið með því að leggja Norrköpping með sex stigum eða meira.

Og nýjust fréttir herma að Keflavík hafi 20 stiga forystu, 91-71 þegar 5 mínútur lifa leiks. Anthony Glover og Maggi Gunn hafa farið á kostum, eins hefur Jonni verið gríðarsterkur í vörninni.

Nú er bara að klára leikinn og treysta svo á að Finnarnir leggi Norðmennina.