Fréttir

Körfubolti | 15. september 2005

Keflavík með nánast fullmannað lið á móti Njarðvík

Keflavík mætir Njarðvík í kvöld í Ljónagryfjunni í Njarðvík.  Keflavík verður með nánast fullmannað lið þar sem landsliðsmennirnir okkar er komnir heim. Einnig er Zlatko og Kalsow komnir til landsins og munu spila með í kvöld. Jón Hafsteinsson á við smá meisli að stríða og mun að öllum líkindum hvíla í kvöld. Annas verður Keflvík með fullmannað lið í fyrsta skipti á þessu tímabili.

Síðasti leikur liðanna fór fram í Keflavík á Sunnudaginn var. Sá leikur fór ekki vel fyrir okkar menn,  því Njarðvík vann leikinn 76-114. Í hópinn í þann leik vantaði þá Magga, Jonna, Arnar Freyr, Gunna Einars, Zlatko og Kalsow. Það eru því margir spenntir fyrir leikinn í kvöld, að sjá landsliðsmennina aftur í liðinu og einnig nýju erlendu leikmennina. Þess ber að geta að það er frítt á leikinn í Njarðvík í kvöld.  Áfram KEFLAVÍK.

Maggi maður leiksins á móti Rúmeníu.